Given gerði fjögurra og hálfs árs samning við City

Shay Given er kominn til Manchester City.
Shay Given er kominn til Manchester City. Reuters

Markvörðurinn Shay Given skrifaði í dag undir fjögurra og hálfs árs samning við Manchester City að undangenginni læknisskoðun hjá félaginu. Given er 32 ára gamall og hefur varið mark Newcastle frá árinu 1997. Ekki hefur verið gefið upp kaupverð. City veður í peningum þessa dagana en gengi liðsins á vellinum hefur ekki verið til að hrópa húrra fyrir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert