Ryan Giggs hvergi nærri hættur

Ryan Giggs langar að lyfta fleiri titlum með Manchester United.
Ryan Giggs langar að lyfta fleiri titlum með Manchester United. Reuters

Hinn 35 ára gamli Ryan Giggs, knattspyrnukappi með Manchester United, hefur gert eins árs samning við félagið í viðbót, en hann er á sínu 20. tímabili með liðinu.

„Ég mun ekki leggja skóna á hilluna. Það er enginn sannleikur í þeim orðrómi. Ég nýt fótboltans meira en nokkru sinni áður. Hlutirnir gætu ekki verið betri. Ég er að spila með hæfileikaríkum hópi leikmanna og andinn í búningsherberginu er frábær og því er það ætlun mín að spila lengur en bara út þessa leiktíð,“ sagði Giggs.

Giggs hefur leikið 787 leiki og hefur unnið 10 Englandsmeistaratitla með United, auk fjölda annarra titla, en hann hóf að leika með liðinu árið 1991.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert