Henry og Iniesta klárir í slaginn gegn United

Thierry Henry fagnar hér með stæl einu af mörkum sínum …
Thierry Henry fagnar hér með stæl einu af mörkum sínum með Barcelona á leiktíðinni. Reuters

Spænskir fjölmiðlar greindu frá því í dag að Thierry Henry og Andres Iniesta yrðu klárir í slaginn með Barcelona þegar liðið mætir Manchester United í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu sem fram fer í Róm í næstu viku.

Henry meiddist á hné í hinum magnaða sigri Barcelona á Real Madrid á dögunum og hefur verið frá keppni síðan. Hann er allur að braggast og sömu sögu er að segja um Andres Iniesta. Hann kenndi sér meins eftir leikinn á móti Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildarinnar en Iniesta jafnaði metin á ögurstundu og tryggði Börsungum farseðilinn í úrslitaleikinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert