Ferguson: Söknuðum Fletchers

Darren Fletcher gengur af velli í leiknum á móti Arsenal …
Darren Fletcher gengur af velli í leiknum á móti Arsenal þar sem hann fékk rauða spjaldið. Reuters

Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United segir að lið sitt hafi saknað mjög skoska miðjumannsins Darren Fletchers í leiknum gegn Barcelona í Róm í gær en Fletcher tók út leikbann.

,,Ég hugsaði fyrir leikinn að fjarvera hans gæti valdið okkur vandamálum. Fletcher spilar ávallt vel í stóru leikjunum og það var missir að vera án hans. Það er erfitt að segja hversu mikill en Barcelona saknaði líka leikmanna,“ sagði Ferguson.

Andy Gray helsti sparspekingur Sky Sports sagði í undanfara leiksins að Manchester United myndi sakna Fletchers og það kom á daginn því miðjumenn United voru arfaslakir, þeir vörðust afar illa og voru lítt skapandi.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert