Missir Ferguson tvo til viðbótar?

Nemanja Vidic varnarmaðurinn öflugi hjá Manchester United.
Nemanja Vidic varnarmaðurinn öflugi hjá Manchester United. Reuters

Sir Alex Ferguson gæti misst tvo leikmenn frá sér til viðbótar við Cristiano Ronaldo sem er á leið til Real Madrid fyrir metfé. Argentínumaðurinn Carlos Tévez vill enn komast í burtu frá Englandsmeisturunum og þá er orðrómur í gangi að Barcelona sé á höttunum eftir serbneska varnarmanninum Nemanja Vidic.

Að því er breska blaðið The Times greinir frá í dag en Ana, eiginkona Vidic, ósátt við dvölina í Manchester. Hún vill flytja til heitari lands og er Pep Guardiola þjálfari Barcelona reiðubúinn að punga út 25 milljónum punda fyrir miðvörðinn öfluga.

Ferguson mun ekki sleppa Vidic baráttulaust en Serbinn, sem hefur staðið sig frábærlega með Manchester-liðinu, á þrjú ár eftir af samningi sínum við Englandsmeistarana.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert