Tottenham lagði Liverpool á White Hart Lane

Sebastien Bassong og Ryan Babel í baráttunni á White Hart …
Sebastien Bassong og Ryan Babel í baráttunni á White Hart Lane í dag. Reuters

Tottenham bar sigurorð af Liverpool, 2:1, í lokaleik 1. umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Benoit Assou-Ekotto og Sebastian Bassong gerðu mörk Tottenham en fyrirliði Steven Gerrard skoraði mark Liverpool úr vítaspyrnu.

1:0 Benoit Assou-Ekotto skoraði glæsilegt mark fyrir Tottenham á 41. mínútu með þrumufleyg rétt utan vítateigs.

1:1 Steven Gerrard jafnar úr vítaspyrnu á 55. mínútu sem dæmd var á Gomes markvörð Tottenham fyrir að fella bakvörðinn Glen Johnson.

2:1 Sebastian Bassong var ekki lengi að koma heimamönnum yfir. Bassong skoraði gott skallamark eftir aukaspyrnu.

Bein lýsing

Tottenham: Heurelho Gomes, Vedran Corluka, Ledley King, Sebastian Bassong, Benoit Assou-Ekotto, Aaron Lennon, Wilson Palacious, Tom Huddlestone, Luka Modric, Robbie Keane, Jermain Defoe.

Liverpool: Jose Reina, Glen Johnson, Jamie Carragher, Martin Skrtel, Emiliano Insua, Dirk Kuyt, Javier Mascherano, Leiva Lucas, Ryan Babbel, Steven Gerrard, Fernando Torres.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert