Wolves vann nýliðaslaginn

Kevin Doyle innsiglaði sigur Úlfanna í dag.
Kevin Doyle innsiglaði sigur Úlfanna í dag. Reuters

Nýliðar Wolves höfðu betur gegn nýliðum Burnley, 2:0, í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag. Serbinn Nenad Milijas skoraði fyrra markið á 15. mínútu og írski framherjinn Kevin Doyle skoraði það síðara á 50. mínútu.

Jóhannes Karl Guðjónsson lék síðustu 25 mínútur leiksins og nældi Skagamaðurinn sér í gult spjald fyrir brot skömmu fyrir leikslok.

Burnley hefur enn ekki náð að sigra á útvelli í deildinni er í 15. sæti deildarinnar með 19 stig og Úlfarnir eru með sama stigafjölda í 12. sæti en þeir voru í fallsæti fyrir leikinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert