Heimasíðu Portsmouth lokað

Stuðningsmenn Portsmouth geta ekki fylgst með sínum mönnum í gegnum …
Stuðningsmenn Portsmouth geta ekki fylgst með sínum mönnum í gegnum veraldarvefinn, fyrr en skuldin hefur verið greidd. Reuters

Enska knattspyrnufélagið Portsmouth, sem Hermann Hreiðarsson leikur með, er komið í enn eina krísuna vegna erfiðrar fjárhagsstöðu. Í dag lokaði fyrirtækið Juicy heimasíðu félagsins og neitar að opna hana aftur fyrr en gengið hefur verið frá skuldum félagsins sem henni tengjast.

Juicy sér um vefmálin fyrr félagið og hefur greinilega fengið nóg af því að fá ekki greitt, en talsmenn fyrirtækisins hafa neitað að ræða málið við fjölmiðla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert