Eiður spilar ekki á morgun

Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. mbl.is/Eggert

Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur, sagði á fréttamannafundi nú síðdegis að hann myndi ekki tefla Eiði Smára Guðjohnsen fram í leiknum við Birmingham í úrvalsdeildinni á morgun.

Eiður mætti á sína fyrstu æfingu hjá Tottenham um hádegið en Redknapp sagði að það væri of snemmt að setja hann beint í leik með liðinu. Hann ætlaði að gefa Eiði viku til að æfa og komast inní hlutina hjá félaginu áður en hann myndi spila fyrsta leikinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert