Aldridge: Nani er ógeðfelldur leikmaður

Nani í baráttu gegn varnarmanni Everton.
Nani í baráttu gegn varnarmanni Everton. Reuters

John Aldridge ein af goðsögnum Liverpool vandar ekki Portúgalanum Nani kveðjurnar fyrir þátt í öðru marki Manchester United gegn Tottenham í dálki sem hann skrifar í enska blaðið Liverpool Echo.

,,Þetta var gjörsamlega einn hræðilegasti leikaraskapur sem ég hef séð hjá atvinnumanni í fótbolta og hann er hraðri leið með að verða óvinsælasti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni,“ ritar Aldridge í Liverpool Echo.

,,Allt sem hann gerði var úthugsað og leikmenn Tottenham voru særðir en í sannleika sagt þá hefði þetta ekki átt að hneyksla okkur svo mikið. Hann er útsmognari en Cristiano Ronaldo og Didier Drogba og er mjög ógeðfelldur leikmaður.“


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert