Messi 4 Arsenal 1 (myndband)

Lionel Messi fagnar marki.
Lionel Messi fagnar marki. Reuters

Knattspyrnuáhugamenn bíða spenntir eftir viðureign Arsenal og Barcelona sem mætast í fyrri rimmu liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á Emirates Stadium í kvöld.

Barcelona sló Arsenal út í 8-liða úrslitunum á síðustu leiktíð en úrslitin urðu samanlagt, 6:3. Argentínski snillingurinn Lionel Messi sá um að skjóta Arsenal út úr keppninni en eftir hafa lent undir á Nou Camp með marki frá Nicklas Bendtner tók Messi til sinna ráða og svaraði með fjórum mörkum. Arsenal-menn eru varla búnir að gleyma þessum leik og hljóta að taka Messi föstum tökum í kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert