Rooney átti að fá rautt spjald

Wayne Rooney lýsir sig saklausan eftir rimmuna við James McCarthy.
Wayne Rooney lýsir sig saklausan eftir rimmuna við James McCarthy. Reuters

Roberto Martinez knattspyrnustjóri Wigan segir að Wayne Rooney hefði átt að fá rautt spjald í leik Wigan og Manchester United í gær. Rooney gaf James McCarthy olnbogaskot í andlitið og komst upp með það þar sem Mark Clattenburg dómari leiksins sá ekki atvikið.

,,Ég sá atvikið mjög vel og dómarinn líka því hann dæmdi aukaspyrnu. Þar sem hann gerði það þá átti hann að lyfta rauða spjaldinu. Ég er búinn að skoða atvikið aftur og það sést greinilega að hann sló McCarthy í andlitið með olnboganum,“ sagði Martinez.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert