Jóhannes og félagar upp í dag?

Jóhannes Karl í búningi Huddersfield.
Jóhannes Karl í búningi Huddersfield. www.htafc.com

Jóhannes Karl Guðjónsson og félagar í Huddersfield mæta Peterborough í úrslitaleik umspilsins um sæti í ensku B-deildinni í knattspyrnu á Old Trafford í Manchester klukan 14.00.

Huddersfield lagði Bournemouth að velli í undanúrslitum umspilsins og Peterborough bar sigurorð af MK Dons.

Jóhannes Karl er á meðal varamanna Huddersfield í leiknum í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert