Tottenham með Forlan í sigtinu

Diego Forlan.
Diego Forlan. Reuters

Framherjinn Diego Forlan frá Úrúgvæ gæti verið á leið í ensku úrvalsdeildina á nýjan leik. Forráðamenn Atletico Madrid segjast reiðubúnir að selja leikmanninn fyrir 7 milljónir punda og er talið líklegt að Tottenham reyni að fá Forlan til liðs við sig en félagið hefur lengi haft augastað á honum.

Forlan, sem er 32 ára gamall og lék með Manchester United áður en hann fór til Spánar, hafnaði því að fara til tyrkneska liðsins Galatasaray en hann vill gjarnan spila aftur í ensku úrvalsdeildinni.




mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert