Adam úr leik hjá Skotum

Charlie Adam fagnar marki fyrir Liverpool.
Charlie Adam fagnar marki fyrir Liverpool. Reuters

Charlie Adam, miðjumaður Liverpool, getur ekki spilað með Skotum á þriðjudagskvöldið þegar þeir taka á móti Litháum í undankeppni EM í knattspyrnu á Hampden Park í Glasgow.

Adam meiddist á mjöðm í leik Skota og Tékka á Hampden Park í gær en hann spilaði í 79 mínútur þegar liðin gerðu þar jafntefli, 2:2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert