Allen: Vona að við getum haldið Gylfa

Gylfi Þór Sigurðsson í leiknum við Fulham á laugardaginn.
Gylfi Þór Sigurðsson í leiknum við Fulham á laugardaginn. Reuters

Joe Allen, miðjumaður velska knattspyrnuliðsins Swansea City, vonar innilega að félaginu takist að halda Gylfa Þór Sigurðssyni í sínum röðum að þessu keppnistímabili loknu.

Gylfi hefur skorað 5 mörk og lagt upp tvö í níu leikjum með Swansea í ensku úrvalsdeildinni síðan hann kom þangað í láni frá Hoffenheim í janúar. Tvö þau síðustu komu gegn Fulham á laugardaginn og Gylfi er alls staðar í úrvalsliði umferðarinnar í deildinni.

„Við yrðum hæstánægðir ef okkur tækist að halda honum. Hann hefur fært liðinu svo mikið. Mörkin tvö gegn Fulham sýna vel hve góður hann er á mörgum sviðum fótboltans. Ég held að það séu ekki margir ungir leikmenn í deildinni í sama gæðaflokki og hann. Vonandi er hann til í að vera áfram því hver einasti stuðningsmaður félagsins vill halda honum," sagði Allen við WalesOnline.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert