Hoffenheim tilbúið að selja Gylfa

Gylfi Þór í leiknum gegn Fulham um síðustu helgi.
Gylfi Þór í leiknum gegn Fulham um síðustu helgi. AFP

Ernst Tanner, íþróttastjóri þýska knattspyrnuliðsins Hoffenheim, segir í viðtali við Daily Star í morgun að til greina komi að selja Gylfa Sigurðsson en til að svo verði þurfi að berast áhugavert tilboð.

Fram til þessa hafi engin tilboð borist í Gylfa sem skorað hefur fimm mörk í níu leikjum með Swansea í ensku úrvalsdeildinni en hann var lánaður til enska úrvalsdeildarliðsins um áramótin. 

„Tilboð hafa ekki borist í Gylfa en ef eitthvað kemur og leikmaðurinn hefur áhuga verður það skoðað,“ segir Tanner við Daily Star á Englandi.

Gylfi Sigurðsson t.h. fagnar marki í leik með Swansea.
Gylfi Sigurðsson t.h. fagnar marki í leik með Swansea. AP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert