Paulinho í læknisskoðun hjá Tottenham

Paulinho verður að öllum líkindum liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar næsta …
Paulinho verður að öllum líkindum liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar næsta vetur. AFP

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Paulinho er í læknisskoðun hjá enska félaginu Tottenham Hotspur þessa stundina, samkvæmt frétt BBC, og talið er að hann verði jafnvel kynntur til sögunnar hjá félaginu síðar í dag.

Paulinho kom til London í gær en reiknað er með að Tottenham greiði Corinthians um 17 milljónir punda fyrir þenna 24 ára gamla miðjumann sem var kjörinn þriðji  besti leikmaður Álfukeppninnar í Brasilíu sem lauk um síðustu helgi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert