Fernando til liðs við Manchester City

Fernando.
Fernando. AFP

Brasilíski miðjumaðurinn Fernando Francisco Reges mun leika með Englandsmeisturum Manchester City á næstu leiktíð en portúgalska liðið Porti greindi frá því í kvöld að það hafi samþykkt að selja leikmanninn fyrir 15 milljónir evra.

Fernando er 26 ára gamall sem hefur leikið með Porto frá árinu 2008. City gerði tilraun til að fá leikmanninn til liðs við sig í janúar en tilboði félagsins var hafnað. Hann er ekki leikmannahópi Brasilíu á HM

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert