Gylfi í læknisskoðun hjá Swansea

Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. AFP

Netútgáfa enska blaðsins The Guardian segir að Gylfi Þór Sigurðsson sé búinn að fá heimild til að fara í læknisskoðun hjá Swansea City, sem sé búið að ná samkomulagi við Tottenham Hotspur um kaup og kjör.

Sé þessi frétt á rökum reist, bendir allt til þess að Gylfi gangi til liðs við Swansea á morgun og snúi þar með aftur á fornar slóðir eftir að hafa verið í láni hjá velska liðinu fyrri hluta ársins 2012.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert