Enn heldur flóttinn mikli frá Southampton áfram. Nú greinir BBC frá því að franski miðjumaðurinn Morgan Schneiderlin og enski framherjinn Jay Rodriguez séu nálægt því að ganga í raðir Tottenham Hotspur.
Gangi kaupin eftir hjá Tottenham verða ansi fáir fastamenn eftir hjá Southampton frá því á síðustu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni. Þegar hafa Luke Shaw, Adam Lallana, Dejan Lovren, Ricky Lambert, Calum Chambers og Guly do Prado horfið á braut frá félaginu.