Framherjinn Enner Valencia, landsliðsmaður Ekvador í knattspyrnu gekk í dag í raðir enska úrvalsdeildarliðsins West Ham frá Pachua í Mexíkó. Þessi 24 ára gamli leikmaður gerði fimm ára samning við Hamrana.
Frammistaða Valencia með landsliði Ekvador á HM í Brasilíu í sumar vakti mikla athygli sem varð til þess að lið innan Evrópu beindu sjónum sínum að honum.
„HM gaf mér tækifæri til að sýna mig fyrir liðum í Evrópu og ég vil nýta þetta tækifæri sem ég fæ hjá West Ham,“ sagði Valencia eftir að hann var kynntur sem leikmaður West Ham í dag.