Undirbúa tilboð í Carvalho

Louis van Gaal.
Louis van Gaal. AFP

Louis van Vaal knattspyrnustjóri Manchester United vinnur hörðum höndum að því að styrkja leikmannahóp sinn enn frekar áður en félagaskiptaglugganum verður lokað á mánudaginn.

Nýjustu fregnir af Old Trafford herma að United sé að undirbúa 24 milljón punda tilboð í William Carvalho miðjumann Sporting Lissabon en enska blaðið Telegraph greinir frá þessu í dag. United hafi ákveðið að snúa sér að Carvalho þar sem svo virðist vera að það fá ekki Sílemanninn Arturu Vidal frá Juventus.

Jafnframt segir blaðið frá því að Van Gaal sé reiðubúinn að losa sig við þá Danny Welbeck, Tom Cleverley og Shinji Kagawa.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert