Louis van Gaal knattspyrnustjóri Manchester United segist mjög ánægður með innkomu belgíska miðjumannsins Marouane Fellanini í síðustu leikjum.
Belginn hárprúði átti afar erfitt uppdráttar á síðustu leiktíð og áttu margir von á að hann yrði seldur í sumar en Van Gaal var öðru máli og Fellaini hefur komið sterkur inn í liðið í síðustu leikjum.
„Hann hefur komið öflugur inn í liðið, skorað mark og átti stóran þátt í markinu á móti Chelsea. Hann er búinn að missa mikið úr vegna meiðsla en þegar hann hefur verið heill heilsu þá hef ég teflt honum fram. Vonandi heldur hann áfram á þessari braut,“ sagði van Gaal.