Pardew á leiðinni til Palace?

Alan Pardew.
Alan Pardew. AFP

Enskir fjölmiðlar velta nú vöngum yfir því hvað Alan Pardew, knattspyrnustjóri Newcastle, hyggist gera en sterkur orðrómur er í gangi um að hann ætli að hverfa þaðan á braut og taka við liði Crystal Palace. 

Þetta fékk byr undir báða vængi í gær þegar Pardew mætti ekki á fréttamannafund eftir sigur Newcastle á Everton, 3:2, en lét aðstoðarmann sinn, John Carver, um að spjalla við fjölmiðlana.

Neil Warnock var sagt upp störfum hjá Palace á laugardaginn og aðstoðarstjórinn Keith Millen stýrði liðinu í markalausu jafntefli gegn QPR í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert