Rétt hjá mér að taka Falcao af velli

Louis van Gaal.
Louis van Gaal. AFP

Louis van Gaal knattspyrnustjóri Manchester United ver þá ákvörðun sína að taka Kólumbíumanninn Radamel Falcao af leikvelli rétt eftir frábæra takta framherjans sem kom United á endanum yfir gegn Sunderland eftir að brotið hafði verið á honum.

„Þetta var frábærlega gert hjá honum og ég sagði það við hann. En knattspyrna er ekki bara ein hreyfing, hún er meira en það og ég verð að hugsa um liðið,“ sagði van Gaal við enska fjölmiðla eftir leikinn á laugardag.

Ágætis fyrsta snerting:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert