Liverpool vill fá Vietto

Luciano Vietto, til vinstri, fagnar marki með Villareal.
Luciano Vietto, til vinstri, fagnar marki með Villareal. EPA

Argentínski framherjinn Luciano Vietto leikmaður spænska liðsins Villareal er á óskalista Liverpool.

Brendan Rodgers knattspyrnustjóri Liverpool hyggst reyna að landa Vietto til Anfield í sumar en þessi 21 árs gamli framherji hefur farið á kostum á leiktíðinni. Hann hefur skorað 18 mörk og átt 6 stoðsendingar.

„Hann gæti samið við Liverpool en við vitum að það er áhugi frá Real Madrid sem og hjá tveimur liðum í þýsku Bundesligunni, “ segir Jorge Cysterpiller umboðsmaður Argentínumannsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert