Cisse í sjö leikja bann

Jonny Evans og Papisse Cisse í leiknum í gær.
Jonny Evans og Papisse Cisse í leiknum í gær. AFP

Papiss Cisse framherji Newcastle sem viðurkenndi í dag að hafa hrækt í átt að Jonny Evans varnarmanni Manchester United í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöld hefur verið úrskurðaður í sjö leikja bann þar sem hann mótmælti ekki kæru enska knattspyrnusambandsins.

Þetta kemur fram í enskum fjölmiðlum í kvöld en knattspyrnusambandið kærði þá báða í dag og beið þeirra beggja sex leikja bann. Þar sem Cisse hefur nú þegar fengið bann á leiktíðinni eykur það refsingu hans nú um einn leik.

Johnny Evans á enn eftir að tjá sig um málið en hann hefur frest þar til kl. 18 á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert