„Alveg óviljandi“

Mike Willamson og Jamie Vardy utan vallar.
Mike Willamson og Jamie Vardy utan vallar.

Mike Williamson, varnarmaður Newcastle United, neitar ásökunum þjálfara síns um að hafa viljandi látið reka sig útaf í 3:0 tapi liðsins gegn Leicester City. 

Hinn 31 árs gamli miðvörður fékk sitt annað gula spjald fyrir að rjúka í Jamie Vardy þegar þeir voru báðir utan vallar. 

John Carver, þjálfari Newcastle United, sagðist halda að Williamson hafi gert það viljandi, til að taka „auðveldu leiðina út“.

„Það var alls enginn vilji til að meiða Jamie eða vera rekinn af velli“ svaraði Williamson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert