Erfiður leikur framundan

Arsenal og Hull mættust í úrslitaleik enska deildarbikarsins á Wembley …
Arsenal og Hull mættust í úrslitaleik enska deildarbikarsins á Wembley fyrir tæpu ári síðan.

Arséne Wenger, þjálfari Arsenal, er þeirrar skoðunar að sigur Hull á Liverpool sýni að þeirra bíði erfið barátta á mánudaginn. 

Arsenal sækja Hull heim á mánudaginn í von um að þrýsta enn fremur á Manchester City í baráttunni um annað sætið í ensku úrvalsdeildinni.

Hull eru einnig í mikilil baráttu á hinum enda töflunnar og eru fullir eldmóðs eftir 1:0 sigur þeirra á Liverpool síðasta þriðjudag í kjölfar mikilvægs útisigurs á Crystal Palace síðustu helgi.

„Hull eru nýbúnir að vinna Liverpool á heimavelli þannig að við erum varir um að okkar bíði erfiður leikur. Þeir hafa náð tveimur frábærum úrslitum í erfiðum stöðum.“ sagði Wenger. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert