Kane jafnaði markametið

Harry Kane í skotstöðu.
Harry Kane í skotstöðu. AFP

Harry Kane framherji Tottenham jafnaði í dag markametið hjá félaginu í ensku úrvalsdeildinni þegar hann tryggði sínum mönnum 1:0 sigur gegn Everton í lokaumferð deildarinnar.

Kane skoraði 21 mark á leiktíðinni og jafnaði þar með markametið en Teddy Sheringham, Jürgen Klinsmann og Gareth Bale skoruðu allir 21 mark fyrir Lundúnaliðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert