Real vill ekki halda Chicharito

Javier Hernández er samningsbundinn Manchester United.
Javier Hernández er samningsbundinn Manchester United. AFP

Real Madrid hefur ákveðið að nýta sér ekki kaupréttinn á mexíkóska framherjanum Javier Hernández sem kom til félagsins að láni frá Manchester United fyrir nýafstaðið tímabil.

Klásúla í samningnum gerði Real kleyft að kaupa Chicharito að loknu tímabilinu en forráðamenn félagsins hafa ekki áhuga á að nýta sér hana.

Chicharito lék 33 leiki fyrir Real en þar af voru aðeins 12 í byrjunarliðinu. Hann skoraði níu mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert