Advocaat hættur hjá Sunderland

Dick Advocaat.
Dick Advocaat. AFP

Dick Advocaat er hættur sem knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland en hann tók við liðinu í mars og tókst að halda liðinu í deildinni.

Advocaat, sem er 67 ára gamall, segist ekki vilja þjálfa félagslið lengur en hann tók við Sunderland-liðinu eftir að Gus Poyet var rekinn.

 „Að stýra Sunderland hefur verið einn af hápunktum ferils míns,“ segir Hollendingurinn sem víða hefur komið við á ferli sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert