Burnley samþykkir tilboð í Ings

Danny Ings.
Danny Ings. AFP

Burnley, sem féll úr ensku úrvaldeildinni í knattspyrnu, hefur samþykkt 12 milljón punda tilboð frá Tottenham í sóknarmanninn Danny Ings.

Ings, sem er 22 ára gamall, átti góðu gengi að fagna með Burnley á nýafstaðinni leiktíð og er Tottenham ekki eina liðið sem sýnt hefur áhuga á að fá hann til liðs við sig en Liverpool og spænska liðið Real Sociead, sem Alfreð Finnbogason, eru sögð áhugasöm að fá leikmanninn til liðs við sig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert