Wimmer kominn til Tottenham

Kevin Wimmer í loftinu eftir að brotið hafði verið á …
Kevin Wimmer í loftinu eftir að brotið hafði verið á honum í landsleik gegn Bosníu. AFP

Tottenham hefur gengið frá kaupum á austurríska miðverðinum Kevin Wimmer sem kemur til félagsins frá Köln í Þýskalandi.

Wemmer samdi við Tottenham til fimm ára. Hann er 22 ára gamall austurrískur landsliðsmaður sem hefur verið á mála hjá Köln frá árinu 2012 og fór með liðinu upp í efstu deild í fyrra. Hann spilaði 32 leiki af 34 í þýsku 1. deildinni í vetur.

„Ég á Köln mikið að þakka. Ég hef tekið miklum framförum hérna. En núna er kominn tími fyrir næsta skref hjá mér. England er fullkominn staður til þess,“ sagði Wimmer við þýska blaðið Bild áður en hann steig upp í flugvél á leið til Englands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert