Wilshere kærður

Jack Wilshere í góðum gír ásamt Danny Welbeck í fagnaðarlátum …
Jack Wilshere í góðum gír ásamt Danny Welbeck í fagnaðarlátum Arsenal-liðsins. AFP

Enska knattspyrnusambandið hefur kært Jack Wilshere miðjumann úr bikarmeistaraliði Arsenal fyrir ósæmilega hegðun.

Wilshere er kærður fyrir að hafa sungið niðrandi söngva um erkifjendurna í Tottenham þegar leikmenn Arsenal fögnuðu bikarmeistaratitlinum á sunnudaginn þar sem þeir óku upp götur í London á opnum strætisvagni.

Wilshere hefur frest til 10. þessa mánaðar til að svara ákærunni en enski landsliðsmaðurinn hefur átt til að fara yfir strikið, bæði innan sem utan vallar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert