Phil Jones hjá United til 2019

Phil Jones í baráttu við Wayne Routledge, leikmann Swansea.
Phil Jones í baráttu við Wayne Routledge, leikmann Swansea. AFP

Fram kemur í frétt á vef Sky Sports nú rétt í þessu að Phil Jones hafi framlengt samning sinn við Manchester United til ársins 2019. Jones sem er 23 ára gamall kom til United frá Blackburn Rovers árið 2011og hefur leikið 128 leiki með Rauðu djöflunum.   

Jones segist í viðtali við opinbera heimasíðu Manchester United vera aftur spenntur fyrir næsta tímabili og sagði aukinheldur eftirfarandi um nýja samninginn:

„Ég er hæstánægður með að framlengja samning minn og ég hef verið afar ánægður hjá félaginu hingað til. Ég hlakka svo mikið til þess að halda áfram þróun minni sem leikmaður. Það er frábært að vera hluti af þessu félagði og ég get ekki beðið eftir því að byrja nýtt tímabili með félaginu.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert