Tilboð Chelsea í Begovic samþykkt

Asmir Begovic.
Asmir Begovic. AFP

Samkvæmt Gianluca Di Marzio hefur tilboð Chelsea í Asmir Begovic, markvörð Stoke City, upp á 8 milljónir punda hefur verið samþykkt.

Chelsea hefur verið á höttunum eftir Begovic til að taka við af Petr Cech sem varamarkvörður liðsins, en Cech gekk til liðs við Arsenal á 11 milljónir punda í gær. Begovic mun nú þegar hafa samið við Chelsea um laun sem nema 4 milljónum punda á ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert