Mourinho gladdi ungan dreng (myndskeið)

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

José Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea gladdi ungan knattspyrnuáhugamann þegar hann gekk inn í göngin eftir tap sinna manna gegn Arsenal í árlegum leik um Samfélagsskjöldinn á Wembley í dag.

Mourinho kastaði medalíunni sem Chelsea fékk til stráksins eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert