Johnny Evans á leið til WBA

Johnny Evans er á leið til WBA samkvæmt heimildum skysports.com.
Johnny Evans er á leið til WBA samkvæmt heimildum skysports.com. AFP

Samkvæmt heimildum skysports.com er norður-írski varnarmaðurinn Johnny Evans á leiðinni til West Bromwich Albion.

Samkvæmt frétt skysports.com hafa forráðamenn félaganna samið um kaupverð og formsatriði að félagaskiptin gangi í gegn. 

Johnny Evans hefur ekkert spilað með Manchester United á tímabilinu og mátti því leiða líkum að því að hann vær ekki í plönum hjá Louis van Gaal, framkvæmdastjóra Manchester United á þessu tímabili. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert