Liverpool fær framherja og lánar burt

Taiwo Awoniyi með treyju Liverpool.
Taiwo Awoniyi með treyju Liverpool. Ljósmynd/Twitter

Framherjinn Taiwo Awoniyi er genginn til liðs við Liverpool, en hann kemur til félagsins frá heimalandi sínu, Nígeríu.

Awoniyi erátján ára gamall og kaupverðið er talið vera um 800 þúsund pund, en gæti hækkað upp í þrjár milljónir. Framherjinn er hins vegar lánaður til Frankfurt í Þýskalandi og mun leika þar út tímabilið í 2. deildinni þar í landi.

„Þetta er stærsta félag í heimi og það eru forréttindi að vera hér,“ sagði Awoniyi eftir að hafa skrifað undir langtímasamning við Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert