Samkomulag í höfn um De Gea

David de Gea hefur ekkert spilað fyrir Manchester United á …
David de Gea hefur ekkert spilað fyrir Manchester United á tímabilinu. AFP

Spænski markvörðurinn David de Gea mun ef að líkum lætur geta kallað sig leikmann Real Madrid áður en dagurinn er úti.

Real hefur náð samkomulagi við Manchester United um kaup á markverðinum fyrir 22-26 milljónir punda, samkvæmt frétt spænska blaðsins Marca sem er vel inni í málum hjá Real Madrid.

Daily Mirror hafði áður greint frá því að De Gea hefði haldið til Madrid í gær til að ganga frá málinu, en lokað verður fyrir félagaskipti á Spáni í kvöld.

Hugsanlegt er að Keylor Navas, markvörður Real, fari til United en hann mun þó ekki vera hluti af kaupverðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert