Býður Bayern München betur?

Það er spurning hver verður næst áfangastaður Jürgen Klopp.
Það er spurning hver verður næst áfangastaður Jürgen Klopp. AFP

Talið er að forráðamenn Liverpool hafi sett sig í samband við Þjóðverjann Jürgen Klopp með það fyrir augum að bjóða honum starf sem knattspyrnustjóri Liverpool.

Ítalski blaðamaðurinn Tancredi Palmeri bendir hins vegar á að Klopp hafi undanfarið verið í viðræðum við Bayern München um að taka við félaginu af Pep Guardiola næsta sumar. 

Samningur Pep Guardiola við Bayern München rennur út næsta sumar og viðræður um nýjan samning hafa ekki enn hafist. Þá er talið að Guardiola standi til boða að taka við stjórnartaumunum hjá Manchester City af Manuel Pellegrini sem hætti þar næsta sumar. 

Nú er bara spurningin hvernig þessi þjálfarakapall mun ganga upp. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert