„Er besti þjálfari í heimi“

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

Cesc Fábregas, miðjumaður Chelsea, fylgir að fordæmi fyrirliðsins John Terrys með því að hrósa knattspyrnustjóranum José Mourinho í hástert.

Hvorki hefur gengið né rekið hjá Englandsmeisturunum á leiktíðinni en liðið er í fimmta neðsta sæti deildarinnar.

„Hann er besti þjálfarinn í sögu Chelsea og sá besti sem við getum haft. Persónulega hjálpaði hann mér mjög mikið á viðkvæmum tíma á mínum ferli og gaf mér sjálfstraustið. Við höfum ekki staðið okkur vel en við munum gera betur,“ segir Fábregas.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert