Klopp íhugar að kalla Serbann til baka

Jurgen Klopp.
Jurgen Klopp. AFP

Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool íhugar það nú alvarlega að kalla einn leikmann til baka úr láni.

Leikmaðurinn sem um ræðir er kantmaðurinn Lazar Markovic. Liverpool keypti Serbann fyrir 20 milljónir punda á síðasta ári. Hann náði sér ekki á strik með liðinu undir stjórn Brendan Rodgers og í sumar vann hann lánaður til tyrkneska liðsins Fenerbache.

Klopp telur sig geta laðað fram það besta hjá Markovic, sem er 21 árs gamall sem hefur mikinn hraða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert