Mane er ekki til sölu

Sadio Mane, Southampton, í baráttu við Ramires, Chelsea, í leik …
Sadio Mane, Southampton, í baráttu við Ramires, Chelsea, í leik liðanna fyrr í vetur. AFP

Ronald Koeman, knattspyrnustjóri Southampton, ítrekaði afstöðu félagsins þess efnis að Senegalinn Sadio Mane sé ekki til sölu á blaðamannafundi í dag.

Manchester United og Chelsea renna hýru augu til Senegalans samkvæmt breskum fjölmiðlum, en munu ekki hafa erindi sem erfiði ef marka má orð Koeman. 

„Þið getið spurt eins og þið viljið um stöðuna á Sadio og áhuga Manchester United og Chelsea á leikmanninum, en staðreyndin er sú að við munum ekki selja neinn leikmann í Janúar,“ sagði Koeman á blaðamannafundinum. 

Mane hefur leikið vel með Southampton það sem af er tímabili og skorað sex mörk í deildinni á þessu tímabili. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert