United hefur spurst fyrir um Benzema

Karim Benzema.
Karim Benzema. AFP

Fregnir frá Spáni herma að Manchester United hafi nú augastað á einum af framherjum Real Madrid.

Leikmaðurinn sem um ræðir er franski landsliðsmaðurinn Karim Benzema. Manchester United er sagt hafa spurst fyrir um þann möguleika á fá Benzema til liðs við sig en Manchester-liðið hefur átt í miklu basli með að skora mörk á tímabilinu og þarf nauðsynlega á öflugum framherja að halda.

Benzema er 27 ára gamall og verðmiðinn á honum er í kringum 60 milljónir evra en sú upphæð jafngildir tæpum 8,5 milljörðum króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert