„Firmino er einn sá besti“

Brasilíumaðurinn Ronaldinho telur að Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, eigi að byggja lið sitt upp í kringum Firmino. Ronaldinho þykir samlandi sinn einn besti framliggjandi miðjumaðurinn í boltanum í dag.

Talið er líklegt að Klopp vilji hressa upp á leikmannahóp Liverpool í sumar. Ronaldinho hvetur Þjóðverjann til að fá leikmenn sem passa vel með Firmino á vellinum.

„Ég efaðist aldrei um að hann (Firmino) yrði frábær hjá Liverpool. Hann er einn sá besti í sinni stöðu í heiminum. Hann er í sama gæðaflokki og Iniesta, Özil og David Silva. Ég er viss um að Klopp byggir Liverpool upp í kringum hann“ sagði Ronaldinho.

„Klopp er einn af bestu knattspyrnustjórum í heimi og hann veit að Liverpool og Firmino þurfa betri leikmenn. Ég er viss um að Klopp hefur verið lofað nýjum leikmönnum þegar hann tók við Liverpool. Með Firmino sem aðalmann í fersku liði er ekkert því til fyrirstöðu að Liverpool berjist um titla á nýjan leik,“ bætti Ronaldinho við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert