Klopp gekkst undir aðgerð

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool. AFP

Jürgen Klopp knattspyrnustjóri er búinn að gangast undir aðgerð þar sem botnlanginn var fjarlægður úr Þjóðverjanum.

Klopp var fluttur á sjúkrahús í dag með botnlangabólgu og gat þar að leiðandi ekki stýrt sínum mönnum í leiknum gegn Sunderland í ensku úrvalsdeildinni en liðin áttust við á Anfield.

Liverpool fór illa að ráði sínu í leiknum. Liðið komst í 2:0 en Sunderland skoraði tvö mörk á síðustu 10 mínútunum og nældi í mikilvægt stig í fallbaráttunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert