Sprenghlægileg viðbrögð hjá Klopp - myndskeið

Jürgen Klopp.
Jürgen Klopp. AFP

Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool fór á kostum á blaðamannafundi Liverpool í gær. Þar spurði blaðamaður Klopp út í Daniel Sturridge og meintar fregnir í Englandi að kappinn væri ekki ánægður hjá félaginu þessa dagana.

Sturridge hefur verið mikið meiddur á leiktíðinni og Klopp hefur sjálfur meðal annars talað um að hann eigi að gera greinarmun á sársauka og alvöru sársauka, en eitt er víst að Klopp hló sig í gegnum spurningu blaðamannsins.

„Af hverju ætti ég að hugsa um slík­ar vanga­velt­ur? Hver sagði þetta?,“ spurði Klopp og sprakk síðan úr hlátri þegar blaðamaðurinn gat ekki svarað spurningunni

„Ég hef eng­an áhuga á vangaveltum. Þetta er ekkert. Daniel (Sturridge) hef­ur verið á æf­ing­um síðustu daga og það er ekk­ert annað um það að segja. Það lítur allt vel út núna,“ sagði Klopp í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert